Félagsfólki aðildarfélaga STF, gefst kostur á að kaupa ferðaávísun til þess að lækka verð á valinni gistingu.
Á mínum síðum er hægt að sjá hvernig ferðaávísun er notuð og framboð gistingar.
Með ferðaávísun er hægt að fá allt að 20% niðurgreiðslu til viðbótar á ferðaávísunarverðinu, af hverri pöntun á gistingu. Heildarniðurgreiðsla á hvern félagsmann verður að hámarki samtals kr. 20.000 á hverju almanaksári. Tekinn verður 1 punktur fyrir hverja 1000 kr. niðurgreiðslu.
Ferðaávísun er hægt að nýta hjá Útivist, Ferðafélagi Íslands og Fjallaferðum. Auk niðurgreiðslu fær félagsfólk afslátt af ferðum þessara fyrirtækja. Á vef ferðaávísunar undir valmynd í vinstra horni eru allar upplýsingar um ferðir sem nú þegar standa til boða árið 2023
Félagsfólk sækir ferðaávísun og pantar í gönguferðir í gegnum mínar síður.